|
Thursday, 28 June 2007 |
Við fórum í tjaldútilegu með Kolku fyrir um tveimur vikum. Veðrið lék við okkur og við skemmtum okkur mjög vel. Við fórum meira að segja í hvalaskoðun á báti frá Húsavík. Kolka er sennilega fyrsti PON hundurinn sem fer í slíka ferð. Við sáum þrjár tegundir af hvölum, Hnúfubak, Hrefnur og Steypireyð sem er talinn vera stærsta spendýrið sem hefur lifað og er jafnvel talinn vera stærri en risaeðlurnar. Hvalirnir kepptust við að stökkva og taka djúpar dýfur nálægt bátnum. Kolka var frekar óörugg fyrstu fimm mínúturnar en varð fljótt örugg og forvitin um umhverfi sitt. Farþegarnir voru mjög hrifnir af henni og fékk hún því næga athygli. Við vorum mjög stolt af henni og var þetta mjög góð umhverfisþjálfun fyrir hana. Báturinn ruggaði nokkuð og hljóðin úr vélinni voru nokkuð öflug en Kolka stóð sig eins og hetja. Við fengum að sjá mjög fallegt landslag í útilegunni enda ekki við öðru að búast af Íslandi og Kolka skemmti sér mjög vel, hljóp, hoppaði og skoppaði og brosti alla ferðina með öllu andlitinu eins og PON hundum er einum lagið. Við erum búin að setja nokkrar myndir inn á myndasíðuna hér til vinstri.
|
|
|
Tuesday, 05 June 2007 |
Kolka er eins árs í dag eins og systkini hennar í Finnlandi. Hún er ánægð með það eins og sést á myndinni :) Myndin er tekin á keyrslu - en uppáhald hennar er að stinga hausnum út um bílgluggann, fá vindinn í andlitið og þefa af umhverfinu.
|
|
|
Wednesday, 16 May 2007 |
Við höfum ekki getað gefið okkur tíma til að skrifa hingað eða setja inn myndir í langan tíma - Dagbjört var að klára BA verkefnið sitt í bókasafns- og upplýsingarfræði og Bjarni að koma hönnunarfyrirtækinu EKKERT í gang. Kolka byrjaði að lóða í fyrsta skiptið fyrir 5 vikum - rétt eftir 10 mánaða afmælið sitt. Síðan gerðist eitt mjög skemmtilegt. Ásta Dóra hundaþjálfari hjá Gallerí Voff þar sem við vorum með Kolku á hlýðninámskeiði hafði samband vegna þess að hún hafði verið beðin um að finna hund í sjónvarpsauglýsingu fyrir Þýskt tryggingarfélag. Henni fannst Kolka svo sæt og með fallegar hreyfingar. Hún kom og tók mynd af henni sem hún sendi út ásamt myndum af fleiri hundum. Hún fékk svo hlutverkið og fór með Ástu Dóru, kvikmyndatökuliði og leikurum vestur á Snæfellsnes þar sem auglýsingin var tekin á hvítum söndum. Allt gekk vel og skemmti hún sér konunglega. Við fengum að sjá grófklipp af auglýsingunni - hér sjáið þið tvær stillimyndir úr henni. Svo vorum við að setja inn nýjar myndir líka - endilega skoðið þær.
|
|
|
Aapo, Bruno, Bono, Kolka og Nami |
|
Tuesday, 27 March 2007 |
Mirva og Jari í Finnlandi, eigendur tveggja gotbræðra Kolku, sendi okkur frábærar myndir af þeim. Við fengum líka myndir frá Önu ræktanda Kolku af Bono systur hennar og Nami mömmu hennar. Sjá þessar myndir og nýjar myndir af Kolku í myndahlutanum til vinstri.
|
|
|
<< Start < Prev 1 2 3 4 5 6 7 Next > End >>
|
| Results 31 - 34 of 34 |