|
Tuesday, 11 September 2007 |
Nú er undirbúningur fyrir alþjóðlegu haustsýningu HRFÍ kominn á fullt. Við förum núna með Kolku í sýningarþjálfun tvisvar í viku - á sunnudögum hjá ungliðadeildinni og svo á þriðjudögum hjá úrvals- og Schnauzer HRFÍ. Vorum í þriðja skiptið í kvöld og sjáum við miklar framfarir í hverri viku. Hún ætti því vonandi að verða orðinn nokkuð góð í þessu þegar kemur að sýningunni í Víðidal 6. og 7. október.
|
|
|
Sunday, 26 August 2007 |
|
Hér er auglýsingins sem Kolka lék í vor. Þetta eru tvær svokallaðar veðurstiklur - stuttar auglýsingar sýndar á undan veðurfréttum - fyrir Union Investment í Þýskalandi.
Svo kíktum við inn á vefsíðu fyrirækisins að gamni í kvöld og sáum að það var komin ljósmynd af henni líka. 
|
|
|
Tuesday, 31 July 2007 |
Erum búin að setja fullt af nýjum myndskeiðum af Kolku inn á YouTube síðuna hennar. Höfum vanrækt þetta í hálft ár og því eru komin 10 ný myndskeið inn frá síðasta vetri og þar til núna. Hér eru nokkur myndbrot samsett frá sumrinu.
Check out her other videos on YouTube.
|
|
|
Tuesday, 17 July 2007 |
Við fórum á Snæfellsnesið um helgina og Kolka skemmti sér konunglega. Þar fékk hún að hlaupa um í náttúrunni upp fjallshlíðir, inn í dal og fékk að leika sér í fjörunni. Kolka vann þann mikla áfanga að synda í fyrsta skiptið í sjónum. Hún synti tvisvar sinnum í nokkrar sekúndur en Bjarni óð með henni og var Kolka ákaflega stolt af sjálfri sér, hljóp milli okkar brosandi og hristi sig vel. Ynja besta vinkona Kolku (sem er Basenji) hélt Kolku félagsskap alla helgina og léku þær sér mikið saman. Settum myndir á myndasíðuna frá helginni.
|
|
|
Thursday, 28 June 2007 |
Við fórum í tjaldútilegu með Kolku fyrir um tveimur vikum. Veðrið lék við okkur og við skemmtum okkur mjög vel. Við fórum meira að segja í hvalaskoðun á báti frá Húsavík. Kolka er sennilega fyrsti PON hundurinn sem fer í slíka ferð. Við sáum þrjár tegundir af hvölum, Hnúfubak, Hrefnur og Steypireyð sem er talinn vera stærsta spendýrið sem hefur lifað og er jafnvel talinn vera stærri en risaeðlurnar. Hvalirnir kepptust við að stökkva og taka djúpar dýfur nálægt bátnum. Kolka var frekar óörugg fyrstu fimm mínúturnar en varð fljótt örugg og forvitin um umhverfi sitt. Farþegarnir voru mjög hrifnir af henni og fékk hún því næga athygli. Við vorum mjög stolt af henni og var þetta mjög góð umhverfisþjálfun fyrir hana. Báturinn ruggaði nokkuð og hljóðin úr vélinni voru nokkuð öflug en Kolka stóð sig eins og hetja. Við fengum að sjá mjög fallegt landslag í útilegunni enda ekki við öðru að búast af Íslandi og Kolka skemmti sér mjög vel, hljóp, hoppaði og skoppaði og brosti alla ferðina með öllu andlitinu eins og PON hundum er einum lagið. Við erum búin að setja nokkrar myndir inn á myndasíðuna hér til vinstri.
|
|
|
<< Start < Prev 1 2 3 4 5 6 7 Next > End >>
|
| Results 26 - 30 of 33 |