Forsíða arrow FRÉTTIR
FRÉTTIR
Bolta-Kolka
Sunday, 25 November 2007
Ein af uppáhaldsiðju Kolku er að fara í boltaleik.

Vegna þess erum við dugleg að kaupa bolta því okkur finnst mjög gaman að fara í boltaleiki við hana. Í fyrstu vildi hún ekki skila boltunum þegar hún sótti þá en núna er hún farin að átta sig á því að því fyrr sem hún skilar boltanum því fyrr fær hún að elta hann aftur.

Hér mynd af Kolku með boltasafnið sitt. Við áttuðum okkur ekki á því hversu stórt það var fyrr en við fórum að tína bolta undan húsgögnunum á heimilinu.

Boltakolka

Hér er svo mynd af Kolku að reyna að ná einum bolta undan skenknum í holinu heima hjá okkur. Það er oft mjög fyndið að fylgjast með henni í þeim erindagjörðum. Stundum tekst henni að ná þeim en oftast eru framfæturnir og hausinn bara of stuttur.

Boltakolka

Svo er komnar fleiri nýjar myndir á myndasíðuna .
 
Velkomin á nýju heimsíðuna
Sunday, 18 November 2007
Við erum búin að vera mjög upptekin við það að setja hana upp og höfum því ekki sett inn nýjar fréttir af Kolku í þónokkurn tíma. Það mun vonandi breytast núna enda er þessi síða sett upp í þægilegu vefumsjónakerfi þar sem við getum uppfært síðuna á auðveldan og fljótlegan hátt. Gamla síðan var sett upp handvirkt í html kerfi og því bæði leiðinlegt og seinlegt að breyta og uppfæra.

Það er margt skemmtilegt búið að gerast að undaförnu.

Kolka náði smalaeðlisprófinu og erum við að sjálfsögðu ánægð með það. Stefnan er hjá fjár- og hjarðhundadeildinni að æfa saman í framtíðinni eðlið hjá hundunum okkar og það er auðvitað mjög spennandi.

Annars vorum að rekast á myndir og umfjöllun um klikkernámskeiðið sem við fórum með Kolku í júlí síðastliðinn, á síðu Moniku þjálfara og ræktanda. Sjá hér.

Kolka í klikker

Kolka í keilu

Ljósmyndir teknar af Rúnari Tryggvasyni - fengnar af vef Moniku hundaræktanda og hundaþjálfara.


Við erum mjög hrifin af klikkerþjálfun og Kolka ekki síður eins og sést á myndunum.

Hér er myndskeið sem Monika setti á YouTube þar sem hundurinn hennar er að hjálpa til við þvottinn og að sjálfsögðu notar hún klikkerþjálfun.

Heilbrigði

Kolka fór í augnskoðun hjá Finn Bøserup sérfræðingi frá Danmörku og kom í ljós að hún er með heilbrigð augu. Hún fór einnig í blóðprufu fyrir TSH og T4 og var niðurstaðan góð: "Thyroxine and TSH concentrations are within normal range. Hypothyroidism is unlikely." Síðast en ekki síst fengum við niðurstöður úr mjaðmamyndatökunum og kom í ljós að Kolka er með A/A mjaðmir.

 
Bono og Nami ná góðum árangri
Saturday, 17 November 2007

Bono gotsystir Kolku náði mjög góðum árangri á sýningu hjá finnska PON klúbbnum í ágúst síðastliðnum. Hún gerði sér lítið fyrir og var besti hundur sýningar. Nami móðir þeirra systra Bono og Kolku var í níunda sæti. Ana var að vonum í skýjunum yfir þessum frábæra árangri.

Ana with Bono

Hér er Ana með Bono og verðlaunin. Takið eftir bolnum sem Ana er í - við sendum henni bol með íslenska skjaldarmerkinu og staup í íslensku hrútshorni í þakkarskyni fyrir að vera svona frábær ræktandi.

 
Kolka og kindurnar
Saturday, 20 October 2007
syning

Kolka fór í dag í smalaeðlispróf á vegum fjárhundadeildar HRFÍ. Hún stóð sig vel og við höldum að hún hafi náð, hún skemmti sér allavega konungalega vel. Við fáum niðurstöðuna senda í pósti í næstu viku og munum birta hana hér á síðunni.

Kolka var MJÖG áhugasöm um kindurnar og gelti heilmikið, rak þær og hljóp fyrir þær. Þegar kindurnar voru komnar að girðingunni sneru þær sér stundum við og reyndu að stanga í áttina til Kolku án árangurs því Kolka er töluvert mikið sneggri en var einnig snögg að hlaupa til baka til þeirra. Við fengum reyndar að hitta kindurnar núna á miðvikudaginn hjá Guðrúnu sem er tengilliður Border Collie og býr á Bjarnastöðum í Grímsnesi. Þar tókum eina stutta prufuferð.

Hér er myndskeið samsett úr báðum skiptunum.

 
Frábær árangur um helgina
Monday, 08 October 2007
syning

Kolku gekk mjög vel á alþjóðlegu hundasýningu HRFÍ nú um helgina. Hún fékk 1. einkunn, besti hundur tegundar, heiðursverðlaun, íslenskt meistarastig og alþjóðlegt meistarastig. Hún fékk mjög góða umsögn hjá pólska dómaranum Tomasz Borkowski:

"Nice typical compact with big head + pose (nose?). Nice topline.
Excellent coat. Nice in movements.
Elegant, friendly with good pigmentations. Strong bones."

Hún komst því í úrslit í tegundahópi 1 þar sem átta bestu fulltrúar fjár- og hjarðhunda kepptu. Kolka gerði sér lítið fyrir og lenti í 3. sæti. Við erum alsæl með þennan árangur.

Á sýningunni voru yfir 800 hundar af 82 tegundum.

syning

Í úrslitun tegundahóps 1. Til vinstri Australian Shepherd og til hægri fjarskyldur ættingi, Puli.

syning

Harry Tast frá Finnlandi að dæma Kolku.
syning

Þriðja sætið í tegundahópi 1 staðreynd.
 
<< Start < Prev 1 2 3 4 5 6 7 Next > End >>

Results 21 - 25 of 33