Forsíða arrow FRÉTTIR
FRÉTTIR
Myndir frá Deildarsýningunni
Friday, 01 February 2008
Fengum sendar myndir frá stjórn Fjárhundadeildarinnar sem teknar voru af Ragnari Sigurjónssyni á deildarsýningunni núna í janúar.

Besti hundur tegundar

Hér er Kolka besti hundur tegundar ásamt dómaranum Kenneth Edh.

Besti hundur sýningar 3

Þriðji besti hundur sýningar.
 
Deildarsýning Fjár- og hjarðhundadeildar
Sunday, 20 January 2008

Verðlaun

Tókum þátt í deildarsýningu Fjár- og hjarðhundadeildarinnar í Reiðhöll Gusts í dag og gekk Kolku mjög vel. Dómarinn var Kenneth Edh frá Svíðþjóð sem dæmir í úrlistum á næstu heimssýningu sem fer fram í heimalandi hans.

Kolka stóð sig vel í sýningarhringnum, var bæði róleg og mjög yfirveguð. Hún fékk fyrstu einkunn, íslenskt meistarstig og var besti hundur tegundar. Þar með tryggði hún sér þátttökurétt í úrslitum en þar náði hún þeim frábæra árangri að vera í þriðji bestu hundur sýningar.

Kolka fékk líka fína umsögn frá Kenneth: "Feminin with nice proportion. Head with nice shape & good exp. Nice eyes and ears. Typical length of neck. Nice topline & croup. Nice ang. and bones. Nice long brisket. Good coat for her age. Very good mover. Exc."

Þessar tegundir tóku þátt: Polski Owczarek Nizinny (1 hundur), Malinois (2 hundar), Briard (4 hundar), Collie rough (4 hundar), Shetland sheepdog (7 hundar), Australian sheperd (9 hundar) and Border collie (18 hundar).

Besti hundur sýningar var Australian Shepherd, annar besti hundur sýningar var Border Collie, þriðji besti hundur sýningar var Polski Owczarek Nizinny fjórði besti hundur sýningar var Shetland Sheedog.

Deildarsýning
Kenneth Edh að dæma Kolku.

Deildarsýning
Besti hundur tegundar.

 Deildarsýning
Úrslitin ráðin - Kolka þriðji bestu hundur sýningar á eftir Aussie og Border Collie.

 
Gleðilegt nýtt ár
Wednesday, 02 January 2008

Gleðilegt nýtt ár

Við óskum öllum gleðilegs nýs ár og farsældar á komandi ári.

Dagbjört, Bjarni og Kolka PON. 

 
Hundafimi
Saturday, 15 December 2007
Þar sem að Kolka er með heilbrigðar mjaðmir þá ákváðum við að skella okkur á námskeið í hundafimi hjá hundafimideild HRFÍ .

Síðasti tíminn var í vikunni og lauk því með nokkurskonar prófi þar sem allir hundarnir fóru eina ferð í gegnum braut eins og um hundafimikeppni væri að ræða.

Kolka stóð sig nokkuð vel þrátt fyrir að ferðin í gegnum brautina hafi ekki verið alveg fullkomin. Líklega hægt að skrifa flest mistökin á meðhlauparann sem gaf stundum ekki nógu skýrar skipanir og ekki alveg með réttar staðsetningar.

Hér er myndskeið sem við tókum.




Með því að klára námskeiðið öðlaðist Kolka rétt til þess að mæta á opna tíma í hundafimi eftir áramót. Að sjálfsögðu ætlar hún að halda áfram að mæta í þá og öðlast meiri færni í hundafimi.
 
Kolka jólaálfur
Friday, 14 December 2007

Kolka álfur

Kolka er greinilega komin í jólaskapið. Þar sem við vorum að leika okkur úti í snjónum í dag og litum af Kolku í smá stund. Þegar við litum aftur á hana var hún að dansa. Hér er hægt að sjá hana.

 
<< Start < Prev 1 2 3 4 5 6 7 Next > End >>

Results 16 - 20 of 33