Forsíða arrow FRÉTTIR
FRÉTTIR
PON á heimssýningu hunda í Svíþjóð 2008
Friday, 04 July 2008

Hérna eru myndir af PON sigurvegurunum á heimssýningu hunda í Svíþjóð í dag. Dómari var Ove Germundsson frá Svíþjóð.

Besti rakki tegundar og BOB var Bratsiostra Pon Furman frá Hollandi.
Hér eru fleiri myndir frá rökkunum.

Best male and BOB - PON at the World Dog Show

Besta tíkin var Wyjatkowa Wizja Moscic frá Póllandi.
Hér eru svo fleiri myndir frá PON tíkunum.

Best female - PON at the World Dog Show 2008

Set svo fljótlega inn hreyfimyndir.

 
CAC Breed Club Show 2008
Thursday, 03 July 2008
Ég sá PON í gær á CAC Breed Club Show 2008 sem haldin var í Almare Stäket nálægt Stokkhólmi í mjög góðu veðri, sól og hita.

Þar sá ég marga fallega PON hunda, tók helling af ljósmyndum og hreyfimyndum. Hér er mynd af sigurvegurunum ásamt sænska dómaranum Louis Gävert-Aspelund.


Polski Owzcarek Nizinny at CAC Breed Club Show 2008

Tók saman 20 bestu myndirnar sem hægt er að skoða hérna.

Ég reyni svo að setja inn myndir frá PON á heimssýningunni annað kvöld. Hann er í sýningarhring A4 frá klukkan 9.00 í fyrramálið.
 
Heimssýning hunda í Stokkhólmi
Monday, 30 June 2008
Heimssýning hundaÉg flýg út til Svíþjóðar eldsnemma í fyrramálið til að sjá PON á heimssýningu hunda í Stokkhólmi um næstu helgi. PON verður sýndur á föstudeginum en ég þarf svo að fljúga aftur heim til Íslands á laugardeginum. Þar sem ég flýg út í bítið næ ég líka að sjá deildarsýningu hjá Svenska Gårds och VallhundsKlubben á miðvikudaginn rétt fyrir utan Stokkhólm þar sem 30 PON hundar verða sýndir.

Tilgangurinn ferðarinnar er að kynna sér PON betur og komast í samband við PON ræktendur og eigendur.

Ég ætla líka að nýta ferðina og taka upp helling af myndefni (video) bæði af PON hundum og spjalla eitthvað við eigendur og ræktendur. Set svo saman stutta mynd um PON með þessu efni sem hægt verður að skoða hérna síðar í sumar.
 
Sumarsýning HRFÍ 2008
Sunday, 29 June 2008
Tókum þátt í sumarsýningu HRFÍ í dag.

Sumarsýning

Kolka komst ekki áfram - fékk rauðan borða (Very good) í opnum flokki PON og rauðan borða (1. sæti) í opnum keppnisflokki PON.

Kurt Nilson dæmdi og gaf henni þessa umsögn: „Feminine with good head + expression. Good neck. Good proportions. Enough angel. Good bone + feet. Could move better in front. Narrow behind. Good coat.“

Kolka var alltof æst til þess að hún gæti sýnt eitthvað. Hún hoppaði og skoppaði og lét eins og kjáni. Dómarinn hleypti aðeins fjórum tegundum af níu af níu áfram í tegundahóp 1. Kolku fannst allavega mjög gaman og það er nægur tími til að undirbúa sig vel fyrir næstu sýningu í haust.
 
Framhaldsnámskeið - myndskeið
Monday, 23 June 2008


 
<< Start < Prev 1 2 3 4 5 6 7 Next > End >>

Results 6 - 10 of 33