Forsíða arrow FRÉTTIR
FRÉTTIR
Gleðileg jól og farsælt komandi ár
Saturday, 27 December 2008

Merry Christmas



Árið var viðburðaríkt hjá Kolku. Hún æfði og keppti í hundafimi, tók þátt í tveimur hlýðni námskeiðum (I og II) hjá Ástu Dóru í Gallerí Voff sem hún náði með mjög góðum árangri. Einnig æfðum við víðavangsleit í sumar hjá BHSÍ - Björgunarhundasveit Íslands.

Fjölskyldan stækkaði líka þegar við eignuðumst lítin dreng í nóvember. Hann var svo skírður Helgi núna í desember. Kolka mætti þessari nýju áskorun með ró og yfirvegun.

Kolka og Helgi

Við óskum ykkur gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári.
Bjarni, Dagbjört, Helgi og Kolka.
 
Íslenskur meistari
Friday, 17 October 2008
Kolka hefur hlotið titilinn íslenskur meistari frá HRFÍ. Fengum við skjal og rósettu því til staðfestingar í dag.

Íslenskur meistari
ISCH Zalotnican Backtracker
 
Haustsýning HRFÍ 2008
Monday, 29 September 2008
Haustsýning HRFÍ 2008
Agnes Kertes Ganami, Kolka og Bjarni. Ljósmynd HRFÍ.

Haustsýning Hundaræktarfélags Íslands er nýafstaðin og tókum við þátt að vanda.

Kolka var besti hundur tegundar með íslenskt og alþjóðlegt meistarastig og varð síðan þriðji besti hundur í úrslitum í tegundahópi 1 á eftir ástralskum fjárhundi (fyrsta sæti) og þýskum fjárhundi (annað sæti). Nú getum við sótt um íslenska meistaranafnbót og svo vantar Kolku aðeins eitt CACIB í alþjóðlegan meistaratitil.

Agnes Kertes Ganami dæmdi og fékk Kolka eftirfarandi umsögn frá henni:

Good quality bitch. Excellent outline. Good head + body proportion. Correct length of body. Breed typical. Good in texture + coat. Good tail carrige. Excellent mover with long steps. Excellent.

Undirbúningur fyrir sýninguna var mikill sem fólst í því að fara á heimshundasýninguna í Svíþjóð í sumar til þess að fá betri tilfinningu fyrir hvernig tegundin er sýnd og snyrt og svo námskeið í sýningarþjálfun hjá Marc Linnér sem hefur getið sér gott orð sem sýnandi og leiðbeinandi fyrir sýnendur. Þar var farið í grunnatriði góðs sýnanda sem var einstaklega gagnlegt og hjálpaði heilmikið við að sýna Kolku betur.


Marc Linnér
Á námskeiði hjá Marc Linnér.

 
Heimsókn frá Finnlandi
Wednesday, 17 September 2008

Christina Kolka og Saami
Christina, Kolka og Saami.

Í sumar fengum við óvænta heimsókn frá Finnlandi þegar Christina og Saami, PON eigendur og ræktendur, voru hérna í stuttu fríi. Þau vildu auðvitað hitta Kolku enda fyrsti og eini PONinn í Norður Atlantshafi.

Það er alltaf gaman að hitta aðra PON eigendur, fræðast og ræða eiginleika tegundarinnar en Christina og Saami eru miklir viskubrunnar þegar kemur að PON.

Hér er vefsíðan þeirra. 

Christina og Saami leist vel á Ísland og ætla að koma aftur í lengri heimsókn.
Svo er vonandi að fleiri PONeigendur reki á fjörur okkar með fróðleik í farteskinu.




Við bendum á nýjung hér á PON síðunni því nú er hægt að skrifa athugasemdir við fréttir. Allir velkomnir að skrifa hugleiðingar eða spurningar.

 
PON úrslit heimsýning hunda - myndskeið
Tuesday, 02 September 2008

Hér eru tvö myndskeið með úrslitum úr öllum flokkum Polski Owczarek Nizinny á heimsýningu hunda í sumar.

Tíkur eru hér:

 

Og rakkar hér:

 
<< Start < Prev 1 2 3 4 5 6 7 Next > End >>

Results 1 - 5 of 34