Forsíða arrow FRÉTTIR arrow Heimssýning hunda í Stokkhólmi
Heimssýning hunda í Stokkhólmi
Monday, 30 June 2008
Heimssýning hundaÉg flýg út til Svíþjóðar eldsnemma í fyrramálið til að sjá PON á heimssýningu hunda í Stokkhólmi um næstu helgi. PON verður sýndur á föstudeginum en ég þarf svo að fljúga aftur heim til Íslands á laugardeginum. Þar sem ég flýg út í bítið næ ég líka að sjá deildarsýningu hjá Svenska Gårds och VallhundsKlubben á miðvikudaginn rétt fyrir utan Stokkhólm þar sem 30 PON hundar verða sýndir.

Tilgangurinn ferðarinnar er að kynna sér PON betur og komast í samband við PON ræktendur og eigendur.

Ég ætla líka að nýta ferðina og taka upp helling af myndefni (video) bæði af PON hundum og spjalla eitthvað við eigendur og ræktendur. Set svo saman stutta mynd um PON með þessu efni sem hægt verður að skoða hérna síðar í sumar.
Comments
Add NewSearchRSS
Write comment
Name:
Title:
Security Image

Powered by JoomlaCommentCopyright (C) 2006 Frantisek Hliva. All rights reserved.Homepage: http://cavo.co.nr/