Forsíða
FRÉTTIR
Framhaldsnámskeið I
FRÉTTIR
Framhaldsnámskeið I | Framhaldsnámskeið I |
| Thursday, 19 June 2008 | ||||||
|
Kolka lauk framhaldsnámskeiði I frá Gallerí voff um síðustu helgi í frábæru veðri upp í Mosfellsdal. Þar með lauk tveggja mánaða námskeiði undir stjórn Ástu Dóru og Guðmundar. Það er ekki í frásögur færandi nema fyrir þær sakir að Kolka var í fyrsta sæti með fyrstu einkunn 9.2 og hlaut gullpening fyrir. ![]() Það voru samtals 13 hundar á þessu námskeiði, einn þýskur fjárhundur, tvær Vizlur, sex labradorar, einn íslenskur fjárhundur og tveir blendingar. ![]() Prófið var skemmtilegt og skiptist niður í þessi verkefni: - Hoppa yfir hindrun, setjast niður og bíða eftir eiganda. - Hoppa yfir vegg, setjast niður og bíða. Hoppa til baka til eiganda á skipun. - Senda hundinn að stöng og setjast niður. - Ganga upp stiga. - Stoppa á göngu og standa. - Ganga við hæl fyrirfram ákveðna leið, setjast, leggjast, bíða, koma á hæl á leiðinni. - Liggja kyrr með öðrum hundum í 3 mínútur. ![]() Kolka skilaði öllum verkefnum réttum nema tveimur. Hún hoppaði of fljótt til baka yfir vegginn, áður en ég náði að gefa skipun og svo kom hún aftur til mín þegar ég sendi hana að stönginni. Hún gerði það þó rétt í síðara skiptið. Kolka var ein af fáum sem gátu stigann án vandræða.
Powered by JoomlaCommentCopyright (C) 2006 Frantisek Hliva. All rights reserved.Homepage: http://cavo.co.nr/ |
||||||














