Forsíða
| Hundafimi |
| Saturday, 15 December 2007 | ||||||
|
Þar sem að Kolka er með heilbrigðar mjaðmir þá ákváðum við að skella okkur á námskeið í hundafimi hjá hundafimideild HRFÍ . Síðasti tíminn var í vikunni og lauk því með nokkurskonar prófi þar sem allir hundarnir fóru eina ferð í gegnum braut eins og um hundafimikeppni væri að ræða. Kolka stóð sig nokkuð vel þrátt fyrir að ferðin í gegnum brautina hafi ekki verið alveg fullkomin. Líklega hægt að skrifa flest mistökin á meðhlauparann sem gaf stundum ekki nógu skýrar skipanir og ekki alveg með réttar staðsetningar. Hér er myndskeið sem við tókum. Með því að klára námskeiðið öðlaðist Kolka rétt til þess að mæta á opna tíma í hundafimi eftir áramót. Að sjálfsögðu ætlar hún að halda áfram að mæta í þá og öðlast meiri færni í hundafimi.
Powered by JoomlaCommentCopyright (C) 2006 Frantisek Hliva. All rights reserved.Homepage: http://cavo.co.nr/ |
||||||











