|
Sunday, 04 November 2007 |
 | Polski Owczarek Nizinny, skammstafað PON heitir þessi vasklega hundategund. Eins og nafnið gefur til kynna er Pólland upprunaland tegundarinnar. Hann er yfirleitt kallaður PON meðal eigenda enda stutt og laggott. PON eru meðalstórir hundar og verða 13–14 ára gamlir. Feldurinn er þeirra helsta einkenni en síð og gróf hár þekja allan líkamann. PON hundar hafa tvöfaldan feld undirfeldurinn er mjúkur en yfirfeldurinn grófur. Feldurinn er yfirleitt hvítur að lit með gráum eða svörtum svæðum. Allir litir eru þó leyfilegir samkvæmt ræktunarstöðlum. PON er líflegur en með góða sjálfstjórn, mjög snjall, athugull og með mjög gott minni. Hann lagar sig vel að flestum aðstæðum, er góður félagi og hollur eiganda sínum. Hann er einstaklega góður vinnuhundur og getur t.d. séð einn um að smala litlum hópi af sauðfé þar sem hann getur tekið sjálfstæðar ákvarðanir. Einnig er hann góður varðhundur. Hreyfing PON er vinnuhundur í eðli sínu og þarfnast því góðrar hreyfingar. Hann þarf að hafa verk að vinna og finnast að hann komi að gagni. Draumaaðstæður hans væru að hlaupa upp og niður hlíðar, smala fé og elta fiðrildi allan daginn. Hann getur þó lagað sig að aðstæðum og þar sem flestir eigendur geta ekki veitt honum þennan draumaheim er mikilvægt að gera sem mest fyrir hann. Hvort sem þú býrð í íbúð í Reykjavík eða úti á landi mun pólski sléttusmalinn vera ánægður svo framarlega að þú örvar huga hans og veitir honum næga hreyfingu. Snyrting Gott er að kemba feld hans einu sinni á dag til að fjarlægja laus hár og koma í veg fyrir flækjur. Mikilvægt að venja hvolpinn strax á að kemba hann og mun honum finnast það notalegt enda kærkomin samverustund milli hundsins og eigandans. Gott er að baða hann með reglulegu millibili. Þá er um að gera að nota tækifærið meðan hundurinn er baðaður til leita að bólgum, sárum eða öðru óeðlilegu. Fyrir þá sem hafa áhuga á að kynna sér tegundina enn frekar bendum við á bókina "Polish Lowland Sheepdog" eftir Elzbieta Augustowska, einnig mælum við með bókinni "The Official Book of the Polish Lowland Sheepdog" eftir E. Jane Brown, Tomasz Borkowski og Margaret Supronowicz. Báðar bækurnar fást m.a. á Amazon vefversluninni. Fyrir þá sem hafa áhuga á að ganga enn lengra og flytja inn PON erum við fús að aðstoða og koma fólki í sambönd við góða ræktendur í Englandi, Svíþjóð og Finnlandi.
|
|