 Mynd úr bókinni „Polish Lowland Sheepdog“ frá Pet Love eftir Elzbieta Augustowska. Ljósmynd eftir Mary Bloom. Polski Owczarek Nizinny - ræktunarmarkmið FCI-Staðlar Nº 251 / 07. 08. 1998 / Upprunaleg þýðing úr pólsku yfir á ensku: Mrs. Peggy Davis Fyrst útgefið: 07.08.1998 Hér í lauslegri þýðingu okkar Gagnsemi: Getur gagnast í ýmsum hlutverkum, bæði sem fjárhundur og varðhundur og í þéttbýli sem mjög góður félagi. F.C.I flokkun: Tegundahópur 1, fjár- og hjarðhundar. Flokkur 1 - fjárhundar. Vinnuprófs ekki krafist. Heildarsvipur: Pólski sléttusmalinn er meðalstór, fyrirferðalítill, vöðvastæltur með síðan þykkan feld. Vel hirtur feldurinn gefur aðlaðandi og áhugavert útlit. Mikilvæg hlutföll: Hlutföll hæðar við herðarkamb á móti lengd líkama er 9:10. Hlutfall lengdar trýnis á móti höfuðkúpu er 1:1, samt getur trýnið verið örlítið styttra. Hegðun og skapgerð: Líflegur en með góða sjálfstjórn, árvakur, lipur, snjall, skarpur og með mjög gott minni. Þolir vel óhagstætt loftslag. Höfuð: Miðlungs, í réttum hlutföllum og ekki of stórt. Þykkur feldur á enni, kinnum og höku sem lætur höfuðið sýnast umfangsmeira en það er. . Mynd úr bókinni „Polish Lowland Sheepdog“ frá Pet Love eftir Elzbieta Augustowska. Ljósmynd eftir Mary Bloom. Höfuðsvæðið: Höfuðkúpa: Ekki of breiðleit, nokkuð ávöl. Andlit: Nef: Eins dökkt og mögulegt er, í samræmi við lit feldsins, með stórar nasir. Trýni: Meðallangt, nefbrú bein. Varir: Liggja þétt að kjálkum, brúnir þeirra í sama lit og nef. Bit og tennur: Kjálkar og tennur mynda skærabit. Augu: Í meðallagi stór, möndlulaga, hnotubrún með líflegu og stingandi augnaráði. Ytri rönd augnloka eru dökk. Eyru: Hangandi, sitja frekar ofarlega, í meðallagi að stærð og hjartalaga. Þau eru breiðari við höfuðið og framendinn liggur þétt við vanga. Eyrun eru mjög kvik og hreyfanleg. Háls: Í meðallagi langur, vöðvamikill, án húðfellinga og liggur fremur láréttur. Bolur: Útlína: Rétthyrnd fremur en ferningslaga. Herðakambur: Áberandi. Bak: Beint, vöðvamikið. Lend: Breið og og vöðvamikil, stutt og snögg. Brjóstkassi: Djúpur, miðlungs breiður, rifbein hvorki flöt né hringlaga. Kviður og magi: Útlínur mynda glæsilega sveigju í átt að afturhlutanum. Skott: • Stutt: Náttúrulega stutt eða kubbslegt eða mjög stutt stíft skott (sem er ekki leyft á Íslandi). • Sítt: Frekar langt og mjög hárprútt skott. Í hvíld hangir skottið. Ef hundurinn er í viðbragðsstöðu er skottið líflega bogið yfir bakið, aldrei upprúllað eða liggjandi á bakinu. Ef skott er miðlungslangt er það borið á mismunandi hátt. Mynd úr bókinni „Polish Lowland Sheepdog“ frá Pet Love eftir Elzbieta Augustowska. Ljósmynd eftir Mary Bloom. Útlimir: Framfætur: Horft framan frá: Samsíða og beinir. Gott jafnvægi í stöðu vegna sterkar beinagrindar. Bógar: Herðablöð breið, í meðallagi að lengd, skástæð, mjög vöðvastælt og sterkbyggð. Kjúka: Hallar örlítið með tilliti til framhandleggs. Loppur: Sporöskjulaga, tær liggja þétt og eru aðeins hvelfdar. Þófar eru mjög stinnir. Neglur stuttar og svartar. Afturfætur: Þegar horft er aftan frá: Samsíða beinir og sterkbyggðir. Liggja þétt og eru sporöskjulaga. Læri: Breið og vöðvamikil. Hæklar: Nokkuð áberandi. Göngulag/hreyfingar: Liprar, svífandi og mjúkar hreyfingar án mikilla lóðrétta hreyfinga. Hann skeiðar oft þegar hann gengur hægt. Húð: Passar vel og er án fellinga. Feldur: Hár: Allur líkaminn þakinn grófum, þéttvöxnum og þykkum hárum í miklu magni. Undirlagið er mjúkt. Feldurinn er sléttur eða örlítið liðaður. Hár á enni hylur augu sem er einkennandi fyrir tegundina. Litur: Allir litir og blettir eru leyfilegir. Stærð: Hæð að herðarkambi: Rakkar : 45 - 50 cm. Tíkur : 42 - 47 cm. Tegundin er vinnuhundur og verður því að halda ákveðnum staðli í stærð. Hann má því ekki vera of lítill, veikburða eða viðkvæmur. Gallar: Öll frávik frá ofangreindum viðmiðum ættu að teljast gallar. Alvarleiki hvers galla ætti að vera í réttu hlutfalli við hversu mikill gallinn er. ATH!: Rakkar ættu að hafa tvö heilbrigð eistu sem hafa að fullu gengið niður í punginn.
|